Atburđarteljari

Auglýsing

The sands

  • Nafn: Hin háttverđuga Sandy
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: Heimavinnandi húsmóđir
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ

Leit

hér er ég

Lítil kona
Nett og grönn....Bumban farin
Í sambúđ međ bestasta manni í heimi!
Ástfangin upp fyrir haus
Gifting á nćsta leyti
Á fallegustu stelpuna í öllum heiminum!
Var ađ klára fyrsta áriđ í sálfrćđi í HA
Í skóla og barnseignarfríi!
Á viđ fullt af stjórnleysi ađ stríđa....í ţrifum, súkkulađiáti, leti...
Oftar en ekki blönk
Ţekki fullt af fallegu fólki
Á ekkert dýrara en ţvottavél
...En hamingjan er ekki metin í eignum!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Ţađ hefur lćgt.....

07. október 2008 klukkan 14:56
...sem er bara besta mál!

Er svaka dugleg þessa dagana að læra....fullt af ritgerðum, verkefnum og lestri í gangi. Vona innilega að andinn haldist yfir mér eitthvað fram á veturinn!

Kreppkreppkreppppppp   maður er orðinn hálf heilaþvegin af þessu krepputali. Hvað gerist hvað gerist!!??
Leyfi mér þó ekki að panikka og hlaupa útí Bónus og versla upp allan dósamat....þó sumir virðast vera að því.
Það er alltaf hægt að skella bara í kartöflurækt hérna uppá heiði ef allt fer á versta veg. Svo er nóg af landssvæði til að hafa eins og eina kú, kindarhóp og nokkrar hænur....gæti ekki verið betra.
Sjálfsþurftarbúskapur gæit bara orðið móðins á ný...

En þrátt fyrir yfirvofandi hrun Íslands þá er maður bara nokkuð hress. Lifi bara fyrir komandi Akureyrar ferð...og komandi utanlandsferð um jólin (sem líklegast mun einkennast af hamstri á hótelmat, út-smygluðu íslensku vatni og Engum verslunarleiðöngrum)...mmmmmm bara kósýgott

já, verð nú að hætta til að haska mér úr borginni yfir á nesið góða
Hin háttverđuga Sandy
6 athugasemdir

vindasamt

01. október 2008 klukkan 15:22
Í dag er svona dagur þar sem manni finnst vindáttin alltaf vera í smettið á manni...hvaða átt sem maður fer!
Ekki hrifin af svona dögumÖskrandi
En ég veit að það er allt saman bara í hausnum á mér.....lundarfar er hugarfar!!! Ekki satt....

Svo bætir ekki úr að það raunverulega hávaðarok úti !!!
Hin háttverđuga Sandy
Engin athugasemd