Atburđarteljari

Auglýsing

The sands

  • Nafn: Hin háttverđuga Sandy
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: Heimavinnandi húsmóđir
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ

Leit

hér er ég

Lítil kona
Nett og grönn....Bumban farin
Í sambúđ međ bestasta manni í heimi!
Ástfangin upp fyrir haus
Gifting á nćsta leyti
Á fallegustu stelpuna í öllum heiminum!
Var ađ klára fyrsta áriđ í sálfrćđi í HA
Í skóla og barnseignarfríi!
Á viđ fullt af stjórnleysi ađ stríđa....í ţrifum, súkkulađiáti, leti...
Oftar en ekki blönk
Ţekki fullt af fallegu fólki
Á ekkert dýrara en ţvottavél
...En hamingjan er ekki metin í eignum!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

dammdída

14. október 2007 klukkan 20:20
Fór inn á síðuna hennar Heiðu og sá að hún var búin að blogga...get ekki verið minni manneskja þannig að ég neyddist til að blogga hér! Glottandi
Bý enn á Reykjanesinu! Og líkar enn veran hér. Er samt frekar þreytt á rigninguni og rokinu, en vona að hluti af því sé bara þetta týpíska haustveður. Allavegna er ekkert skárra veður inn í RVK heldur en hérna á heiðinni.
Fjölskyldan hefur nýtt tíman hér vel í að taka upp allar Amerísku pestirnar...eða er ekki best að kenna kananum um þetta!?!
Höfum fengið: kvefskít, hita+hor+hósta pestar, strepptókokkasýkingar, hitakast og upp- og niðurpestina! Þó misjafnt hvað hver á heimilinu fékk! Very næsÓákveðinn
En utan við pestarnar erum við rosa kát öll saman.
Mín er alveg að brillerar í skólanum, eða þú veist...mæti allavegna og læri oftast heima! Og finnst bara svaka gaman í flestum fögunum. Einar er rosa hress með vinnuna sína. Er bara að vinna frá hálf 8 - 17, nema á föstudögum frá hálf 8-12:15...og engin aukavinna!!! Þvílíkur lúxus fyrir okkur öll. Svo er ég nú í fríi í skólanum á föstudögum svo að við getum átt smá kvolití tíma saman áður en Aggí tagg kemur heim.
Agnes hreinlega Elskar dagmömmuna sína, enda rosa fín kona. Ég sagði við hana einn morgunin þegar við vorum að fara fram úr " eigum við að koma til Möggu og hitta krakkana". Mín hljóp fram í forstofu, á náttfötunum, fann útiskóna sína og plantaði sér reddí fyrir framan útihurðina!! hehheeee ekkert smá mikil rúsína.
Annars er hún orðin algjört skaðræði! er hreinelga hættuleg sjálfri sér..... hún semsagt hefur tekið upp þann skemmtilega sið, sem að flestir foreldrar bíða spenntir eftir, að klifra upp á Allt (mjög lík honum Heidda sínum!)! Upp á allt, inn í allt, yfir allt....klifra klifra klifra! Enda eru marblettir víðsvegar um litla kroppinn eftir klöngrið.
Jám, við semsagt erum bara ánægð með litlu músina okkar, ánægð með blessað Reykjanesið, vinnuna, skólann.....
Erum líka búin að planta okkur bæði í þjónustu í sitthvorri aa-deildinni. Ég á mánudögum og Einar á miðvikudögum. Lýst bara ágætlega á fundina hérna og vel á fólkið. Fórum einmitt í 1 árs ammælisboð á laugardaginn hjá dóttur einnar hérna í aa. Tókst reyndar að plata hana til að vera sponsorinn minn, voða ánægð með það. Maður verður nú að hafa einhvern til að væla í Glottandi
Hef ekki enn fundið mér alanon deild. Er bara ein hér sem er á mánudögum, þannig ég kemst ekki. Er svona að hugleiða að vera inn í RKV á laugardagsmorgnum kl 10, ætla að drattast næsta laugardag!
öööö eitthvað fleira?!!??!? Eitt jú já....ætlum að skella okkur norður helgina 1-4 nóvember!!! JEIJJJJJJ Fengum miða í ammælisgjöf og komum semsagt ammælishelgina mína (3nóv)..og já hans Heidda! Bíð eftir boði í það ammæli......Þögull sem gröfin
Annars verður ekki meira af samkjafti í þessu bloggi, er orðin alveg snauð
kveðja, að amerískum sið, frá Reykjanesinu

Hin háttverđuga Sandy
3 athugasemdir