Atburđarteljari

Auglýsing

The sands

  • Nafn: Hin háttverđuga Sandy
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: Heimavinnandi húsmóđir
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ

Leit

hér er ég

Lítil kona
Nett og grönn....Bumban farin
Í sambúđ međ bestasta manni í heimi!
Ástfangin upp fyrir haus
Gifting á nćsta leyti
Á fallegustu stelpuna í öllum heiminum!
Var ađ klára fyrsta áriđ í sálfrćđi í HA
Í skóla og barnseignarfríi!
Á viđ fullt af stjórnleysi ađ stríđa....í ţrifum, súkkulađiáti, leti...
Oftar en ekki blönk
Ţekki fullt af fallegu fólki
Á ekkert dýrara en ţvottavél
...En hamingjan er ekki metin í eignum!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

10 dagar í settan dag

30. ágúst 2006 klukkan 17:45
OHHHHHHHHHHHHHHHHHHH var búin að skrifa helling og allt bara hvarf!! djö...
Nenni ekki að byrja upp á nýtt!
Jæja allavegna:

Er orðin feit! Tókst að bæta á mig 2 kílóum á milli mæðraskoðana! Sem að by the way var bara vika á milliFýldur 15 kílós komin á kroppinn frá því að krílið kom í bumbuna.

Er löt í dag  - nenni samt ekki að vera í leti!

Langar svoldið að vera í skólanum núna. Er svo gaman að byrja nýja önn...fullur af eldmóð!

Úti geisar haustveður í allri sinni dýrð. Manni verður bara kalt af því að horfa út! oj bara

Langar til að þrífa hátt og lágt hérna heima en verð bara svo lúin fljótt. Slíkt ástand hentar ekki konu eins og mér - konu sem er með maníska fullkomnunaráráttu varðandi hreinlæti.

Bumban mín er stöðugt hörð þessa dagana og er það pirrandi. Vil bara the real thing eða ekkert í þessum málum. Líkar ekki svona stríðniÖskrandi

Já held að þetta sé svona inntak þess sem að ég var búin að rita hér áðan áður en allt fór til fjandans. Ætla að reyna að hafa mig í föt núna, eða allavegna hafa mig í að gera eitthvað af viti




Hin háttverđuga Sandy
7 athugasemdir

14 dagar!

26. ágúst 2006 klukkan 22:51
Menningarvaka í dag. Ég fór í föt fyrir svona 20 mínutum síðan...hef semsagt ekki haft mig niðrí bæ í gleðina! Má þó eiga það að ég rölti alla leið í Strax og verslaði aðeins. Heilsubótarganga dagsins.
Kanski trítlar maður eitthvað um bæinn í kvöld, hver veit. Annars er maðurinn minn búinn að vera að vinna frá því klukkan hálf8 í morgun og er enn að svo að það eru ekki miklar líkur á að hann verði mikill stuðbolti í kvöld! Það er svosem í lagi, ég er ekki mikill stuðbolti á kvöldin þessa daganaÓákveðinn
Það er annars ekki mikið að gerast hér á bæ. Er búin með fyrstu vikuna mína í fríi...aðeins sirka 30 eftir!! Þ.e.a.s. ef að maður talar um fæðingarorlof sem frí.
Kláraði að ganga frá öllu babydótinu í vikunni...hef reyndar sagt þetta áður en Núúúna er það loksins búið. Allt svak fínt raðað í kommóðuna, minnstu fötin í efstu skúffuni, dóterí og bleyjudrasl í miðskúffuni og stærri föt í þeirri neðstu!! Finn alveg hérna heim til mín að þeir sem lesa þetta eru jafn spenntir yfir skipulaginu hjá mér og ég erGlottandi
Þarf bara að strauja rúmfötin sem krílið notar þegar það kemur hjemm af sjúbbanum og þá er allt klárt.
Ætla annars að fara að baka hérna heimatilbúna eðalpizzu, meira að segja betri og ódýrari en megaviku pizzurnar á Dominos!

ps. Henti inn nýjum bumbusmyndum!! er orðin svo huges að ég velti um eins og lítil mörgæs eða önd!! oh my
Hin háttverđuga Sandy
2 athugasemdir

18 dagar í settan dag!!!!

22. ágúst 2006 klukkan 16:01
Sumarið kom um leið og ég fór í frí!! Ég vissi að það myndi gerastBrosandi
Fór í bumbumyndatöku í gær hjá henni Röggu og tel mig bara vera hið fínasta módel. Reyndar miðað við hve margar myndirnar voru með mínum sérstaka Söndru svip þá sé ég ekki fram á að ég gæti komist langt í Americas next top model, en henni Röggu tókst að gera kraftaverk með myndavélinni og við fengum bara slatta af fínum myndum í gegn. Svo ætlar hún að fiffa þær til, svart hvíta þær og laga lýtin (vonandi!) og svo get ég farið að hengja myndir af sjálfri mér upp um alla veggi.
Skelltum okkur svo í sund eftir þessi herlegheit og mín fékk bara fáeinar freknur á fésið. Er að hugsa um að fara aftur á eftir í sund, ef ég nenni.......er svo mikil letiklessa eitthvað í dag. En veðrið bara er svo gott að ég verð að drattast út úr húsi!
Við hjúin fórum í mæðraskoðun í gær og ljósan rosa ánægð með allt, er svo heilbrigð! Krílið alveg eins og það á að vera og bara reddí to go! Þannig að nú hefst biðin mikla.
Bið alla að hugsa sterka hríðarstrauma til mín svo að ég þurfi ekki að bíða of lengi!!
já, farin að éta.............
Hin háttverđuga Sandy
2 athugasemdir

3 vikur í frumburđinn - ef guđ lofar!

16. ágúst 2006 klukkan 21:43
Hef ekki haft tíma til að blogga vegna mikill anna!! Eða þannig....
Eitthvað hefur nú gerst í þessu lífi mínu samt, misspennandi þó. Held að það mest spennandi hafi með nýju heimabíógræjurnar okkar að gera!! Okkur vantaði dvd spilara og áttuðum okkur svo á því að við eigum engar græjur...svo að úr varð nýtt heimabíó. Eðalgott. Maður getur bara hlustað á góða tóna heima í stofu og notið þeirra.
Hef bara svo verið að vinna og sofa síðustu daga. Hætti að vinna til 4 í síðustu viku og er nú frá 8-12. Ljósan mín benti mér vinsamlegast á að minnka við mig og ég var nú bara frekar fegin. Á núna eftir 2 daga í vinnu og fer þá í Fæðingarorlof!!! Jiminn einni! Mun nýta það í að klára að þvo barnaföt.....þau streyma inn endalaust...eigum orðið yfirdrifið af fötum fyrstu 6 mánuðina....þannig að allar gjafir af fötum eru þegnar ef þær eru á barn eldra en 6 mánaða! Ullandi Og, já svo þarf að gera hitt og þetta, eins og að sofa nóg og horfa á vælu-kellinga-myndir....best að nýta þetta viðkvæmnistímabil sem er svona undir lokin og skæla smá yfir Tv´inu
Erum búin að fá allt núna sem þarf fyrir krílið. Gjafapúðin góði kom í vikuni og er hann strax komin í notkun. Gott að kúra með hann og nota til að lesa! Mæli með þeim. Svo var rúmið sett upp á mánudaginn og komin fín himnasæng og svona....ekkert smá krúttaralegt. Nú er bara að koma krílinu út og mun ég reyna að hugsa það ferli í gang næstu 3 vikur! Nenni ekki að ganga einhverjar 2 vikur fram yfir, yrði held ég bara virkilega pirruð og hundleiðinlegÓákveðinn En maður verður víst samt að vera reddí í að það gerist.
jesjes það gerist nú ekki mikið hjá mér sem ekki tengist þessu kríli, það er alveg á hreinu.
Ætla að reyna að gera eitthvað í þessari viku sem er nýtt og spennandi og blogga um það síðar! Eitthvað ferskt....eða eitthvað
Hin háttverđuga Sandy
8 athugasemdir

Ţjóđhátiđ í bumbuni

08. ágúst 2006 klukkan 03:04
Best að blogga meðan maður bíður eftir því að nennirinn til að hafa sig í háttinn birtist.
Versló er senn á enda og er ég bara frekar fegin. Gott að þessi geðveiki sem að átti sér stað hérna í bænum sé búin. Fann alveg í dag, þegar ég og Einar keyrðum fram hjá tjaldsvæðunum, fyrir tilfinninguni sem að maður upplifði í denn á mánudeginum eftir versló. 4-5 daga uppsöfnuð þynnka, mjög oftast mórall og svona *hrolls* tilfinning í öllum líkamanum. Jakkkkkk...alveg verst í heimi. Hef ekki fundið þetta í núna 4 ár! Lúxus
Annars átti ég bara kósý helgi. Snemma að lúlla á föstudag eftir smá videó gláp. Horfðum og eðal mynd, eða ég.....Einar svaf, lucky number slevin. Fannst hún ótrúlega góð bara! Kom á óvart. Svo var laugardagurinn bara þrif og svo bæjarferð um daginn. Það var fínt að fá smá keim af versló. Grilluðum um kvöldið og svo auðvitað heim í lúllinn. Einar var svo í fríi frá vinnu í gær og héngum við heima. Leigðum svo spólu um kvöldið, Just friends...kom á óvart að hún var solfið fyndin bara, og átum sukk matÞögull sem gröfin Alltaf gott. Einar að vinna í dag og ég svaf út og hékk bara heima í dóli. Fundur í kvöld sem ég reyndar fór snemma heim af....fór eitthvað illa um kroppinn minn þarna svo ég hunskaðist heim í náttföt. Svo tekur bara við ný vinnuvika á morgun!
Jammmmm og já
Fluff nenni ekki meir....enda ekkert eftir til að bulla um!
Annars á ég að eiga eftir mánuð! jiminn....Það var einmitt ein að eiga úr bumbuhópnum mínum sem átti að eiga daginn eftir mér! Þetta gæti bara gerst anytimeHissa
Annars henti ég inn bumbumynd
gone with the wind now
Hin háttverđuga Sandy
4 athugasemdir