haustiđ er komiđ
Ég hef enga afsökun fyrir að hafa ekki bloggað síðan 10. júní....nema kanski þá að enginn les þetta blogg hvort sem er!
Skólinn byrjaður...vinnan búin og sumarið líka. Hlakka eiginlega bara þvílíkt til að takast á við verkefni vetrarins. Átti mjög næs vinnusumar, ótrulega gott veður hérna á Suðurnesjunum (ótrúlegt en satt!). Bætti á mig 3 kílóum af hreinum vöðvamassa...engin lygi!
Já, skólinn. Er semsagt að taka aðferðarfræði, stjórnmálafræði, afbrotafræði og hinn bráðskemmtilega áfanga félagsmálalöggjöf. Sá síðast nefndi er nett spes. Þarf ekki að taka nema 2-3 slíka í viðbót í náminu:S En maður þarf víst að kunna alla félagsmálalöggjöf til að geta starfað sem skikkanlega góður félagsráðgjafi.
Skráði mig svo líka í spennandi áfanga, sjálfboðastarf fyrir Rauða krossinn. Bjóst við að þurfa sitja við fatahrúgu að flokka í allan vetur en mér til mikillar ánægju inniheldur áfanginn grunnnámskeið hjá Rauða krossinum og handleiðslu og svo þarf ég að skila inn 30-40 tímum á hvorri önn af vinnu hjá Konukoti. Hlakka þvílíkt til að komast í tæri við starfið þar, þótt það sé líklegast mjög erfitt.
Sumarið var samt frábært þó ég hlakki til vetrarins (svo gaman að hlakka til!).
Fórum familían út til Alicante í magnað sumarfrí. Ferðuðumst lítillega um fallega Ísland. Tonleikar með Bob Dylan, Sigurrós, Björk og Mugison. Frábærar ferðir til Akureyrar hinnar fögru. Og svo bara dúllerí og vinna.
Vetrarplanið er skóli, vinna, lærdómur, fjölskyldan, og andleg iðkun! Er einmitt búin að vera á hugleiðslunámskeiði, ótrúleg snilld!
Svo verður toppurinn um jólin þegar við höldum stórfjölskyldan (Einars megin) til Kanarý og sólum okkur í viku. ÓJÁ
Og þar sem ég skirfa aldrei á síðuna hennar Agnesar þá verð ég víst að skrifa smá hér um litla snúðinn minn.
Engilprúð litla er bara grallari og prakkari og fyndin! Orðin þvílíkt stór, 2 ára pýja. Brasar endalaust allan daginn, leira, lita, mála, lesa, leika, teikna, róló, sund, leikskóli......maður er hreinlega feginn að vera ekki eldri en maður er og hafa einhverja orku til að halda í við hana.
Hún er búin að taka þvílíkan kipp í tali síðan eftir sumarfrí hjá leikskólanum. Farin að sletta jafnvel á ensku ( kvaddi á leikskólanum einn daginn “see you”)!
Er barastastasta duglegasta og flottasta stelpan í bænumJ
Nóg af updati af mér. Blogga kanski aftur fyrir árslok ef tími finnst;)
