Atburðarteljari

Auglýsing

The sands

  • Nafn: Hin háttverðuga Sandy
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Heimavinnandi húsmóðir
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð

Leit

hér er ég

Lítil kona
Nett og grönn....Bumban farin
Í sambúð með bestasta manni í heimi!
Ástfangin upp fyrir haus
Gifting á næsta leyti
Á fallegustu stelpuna í öllum heiminum!
Var að klára fyrsta árið í sálfræði í HA
Í skóla og barnseignarfríi!
Á við fullt af stjórnleysi að stríða....í þrifum, súkkulaðiáti, leti...
Oftar en ekki blönk
Þekki fullt af fallegu fólki
Á ekkert dýrara en þvottavél
...En hamingjan er ekki metin í eignum!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Það hefur lægt.....

07. október 2008 klukkan 14:56
...sem er bara besta mál!

Er svaka dugleg þessa dagana að læra....fullt af ritgerðum, verkefnum og lestri í gangi. Vona innilega að andinn haldist yfir mér eitthvað fram á veturinn!

Kreppkreppkreppppppp   maður er orðinn hálf heilaþvegin af þessu krepputali. Hvað gerist hvað gerist!!??
Leyfi mér þó ekki að panikka og hlaupa útí Bónus og versla upp allan dósamat....þó sumir virðast vera að því.
Það er alltaf hægt að skella bara í kartöflurækt hérna uppá heiði ef allt fer á versta veg. Svo er nóg af landssvæði til að hafa eins og eina kú, kindarhóp og nokkrar hænur....gæti ekki verið betra.
Sjálfsþurftarbúskapur gæit bara orðið móðins á ný...

En þrátt fyrir yfirvofandi hrun Íslands þá er maður bara nokkuð hress. Lifi bara fyrir komandi Akureyrar ferð...og komandi utanlandsferð um jólin (sem líklegast mun einkennast af hamstri á hótelmat, út-smygluðu íslensku vatni og Engum verslunarleiðöngrum)...mmmmmm bara kósýgott

já, verð nú að hætta til að haska mér úr borginni yfir á nesið góða
Hin háttverðuga Sandy
6 athugasemdir

vindasamt

01. október 2008 klukkan 15:22
Í dag er svona dagur þar sem manni finnst vindáttin alltaf vera í smettið á manni...hvaða átt sem maður fer!
Ekki hrifin af svona dögumÖskrandi
En ég veit að það er allt saman bara í hausnum á mér.....lundarfar er hugarfar!!! Ekki satt....

Svo bætir ekki úr að það raunverulega hávaðarok úti !!!
Hin háttverðuga Sandy
Engin athugasemd

kreppa

29. september 2008 klukkan 12:49
Kreppa....!
Nei held ég hafi ekki mikið um hana að segja. Á engar eignir, né skuldir að ráði svo að við familían erum nokkuð seif. Aldrei verið eins ánægð með það að hafa ekki keypt hús eða bíl á einhverjum hrikalega óhagstæðum lánum! fjufffff

Lífið núna snýst bara um skóla, skóla....og skóla. Ekki má reyndar gleyma litlu fjölskyldunni minni :)
Strax búinn mánuður af skólanum, bara 2 eftir! Var að komast að því að það á að flýta prófunum, svo að upplestrarfríið dettur útÓákveðinn Maður verður greinilega að lesa eitthvað heima yfir önnina til að ná þessum prófum. Sem verða þó ekki nema 3 í ár, sem betur fer.
Er farið að hlakka til jólanna! Já, jólanna! Skil þetta ekki alveg, en ég bara get ekki beðið eftir að fara að skreyta og baka og pakka inn gjöfum...og bara jólastússast.
Hef samt ákveðið að reyna að forgagnsraða "tilhlökkunum" mínum og ætla að eyða tíma mínum núna í að hlakka til næsta stóratburðar í lífi mínu..... Sem verður ferð til Akureyrar hinnar fögru, EIN. Ojá, ætla að skilja mann og barn eftir á nesinu og fara í 3 daga leti afmælisferð til múttu minnar, fyrstu helgina í nóvember. Hef aldrei verið án báðra elskanna minna yfir helgi, verður spes en vonandi líka bara kósý.

Hef takið ákvörðun um að verða aldrei aftur ólétt! Börn eru verkfæri djöfuls segi ég.
Dóttir mín kom heim fyrir síðustu helgi með ælupesti, hér var allt útælt og næs í um 5 daga. Fékk svo heiðurinn af því að fá pestina líka. Eyddi mörgum klst fyrir framan klósettskálina, ælandi öllu og engu. Þvílíkur vibbbbbbbbbbii! Minnti mig á hina ógeðslegu morgunógleði þegar ég gekk með Agnesi, HrooollurÖskrandi
 
Já, ætli ég verði ekki búin að gleyma þessu eftir viku og eggjastokkarnir farnir að klyngja háum hljómi!
Hin háttverðuga Sandy
2 athugasemdir

haustið er komið

17. september 2008 klukkan 11:00

Ég hef enga afsökun fyrir að hafa ekki bloggað síðan 10. júní....nema kanski þá að enginn les þetta blogg hvort sem er!

Skólinn byrjaður...vinnan búin og sumarið líka. Hlakka eiginlega bara þvílíkt til að takast á við verkefni vetrarins. Átti mjög næs vinnusumar, ótrulega gott veður hérna á Suðurnesjunum (ótrúlegt en satt!). Bætti á mig 3 kílóum af hreinum vöðvamassa...engin lygi!

Já, skólinn. Er semsagt að taka aðferðarfræði, stjórnmálafræði, afbrotafræði og hinn bráðskemmtilega áfanga félagsmálalöggjöf. Sá síðast nefndi er nett spes. Þarf ekki að taka nema 2-3 slíka í viðbót í náminu:S En maður þarf víst að kunna alla félagsmálalöggjöf til að geta starfað sem skikkanlega góður félagsráðgjafi.

Skráði mig svo líka í spennandi áfanga, sjálfboðastarf fyrir Rauða krossinn. Bjóst við að þurfa sitja við fatahrúgu að flokka í allan vetur en mér til mikillar ánægju inniheldur áfanginn grunnnámskeið hjá Rauða krossinum og handleiðslu og svo þarf ég að skila inn 30-40 tímum á hvorri önn af vinnu hjá Konukoti. Hlakka þvílíkt til að komast í tæri við starfið þar, þótt það sé líklegast mjög erfitt.

 

Sumarið var samt frábært þó ég hlakki til vetrarins (svo gaman að hlakka til!).

Fórum familían út til Alicante í magnað sumarfrí. Ferðuðumst lítillega um fallega Ísland. Tonleikar með Bob Dylan, Sigurrós, Björk og Mugison. Frábærar ferðir til Akureyrar hinnar fögru. Og svo bara dúllerí og vinna.

 

Vetrarplanið er skóli, vinna, lærdómur, fjölskyldan, og andleg iðkun! Er einmitt búin að vera á hugleiðslunámskeiði, ótrúleg snilld!

Svo verður toppurinn um jólin þegar við höldum stórfjölskyldan (Einars megin) til Kanarý og sólum okkur í viku. ÓJÁ

 

Og þar sem ég skirfa aldrei á síðuna hennar Agnesar þá verð ég víst að skrifa smá hér um litla snúðinn minn.

Engilprúð litla er bara grallari og prakkari og fyndin! Orðin þvílíkt stór, 2 ára pýja. Brasar endalaust allan daginn, leira, lita, mála, lesa, leika, teikna, róló, sund, leikskóli......maður er hreinlega feginn að vera ekki eldri en maður er og hafa einhverja orku til að halda í við hana.

Hún er búin að taka þvílíkan kipp í tali síðan eftir sumarfrí hjá leikskólanum. Farin að sletta jafnvel á ensku ( kvaddi á leikskólanum einn daginn “see you”)!

Er barastastasta duglegasta og flottasta stelpan í bænumJ

 

Nóg af updati af mér. Blogga kanski aftur fyrir árslok ef tími finnst;)

Hin háttverðuga Sandy
Engin athugasemd

Sumarið er komið!

10. júní 2008 klukkan 14:05
Loksins er sumarið alveg komið hérna á Reykjanesinu! Sól daglega.....og líka reyndar rigning...frekar skondið veðurkerfi hérna á nesinuÓákveðinn

Er byrjuð að vinna. Smá breytingar urðu, fékk að skipta yfir í garðyrkjuna og þýðir það að ekki þarf ég að öskra og æpa á skara af óþekkum unglingum...heldur verða nokkrir á mínum aldri (sem er frá 20-28 ára!) og nokkrir unglingspésar. Nokkuð fínt bara, þurfum allavegna ekki að vera í þessum týpísku týna rusl raka gras störfum.
Mín er meira að segja orðin nokkuð tönnuð bara á 2 vikna útiveru, húðliturinn er allavegna að nálgast almennan mannlegann húðlit. Verð orðin ansi fín og sæt í lok sumars...allavegna í framan þar sem maður er kappklæddur allstaðar annarsstaðar

25 dagar í  úglanda ferðina miklu!! Gæti hreinlega gufað upp af eftirvæntingu!!!!!!! Ætla að hafa það svo gott með litlu familíunni minni og gera svo margt .... en samt helst ekkert! Leti, sól, búðir, sundlaugar, kósýheit.....

Er svo loks búin að fá útúr öllum fögunum. Ákvað að hafa þetta svoldið einfalt í ár og fá 8 í öllu nema aðferðarfræðinni góðu. Skellti mér á 7,5 þar....guð á himnum var ég fegin að ná henni! Nú eru bara 2 aðferðarfræði áfangar eftir Öskrandi

Núna bíð ég svo spennt eftir að fá að vita hvort að Japans ritgerðarkeppnin sem ég tók þátt í skili sér eitthvað. Var semsagt ritgerðarkeppni nema og fá nokkrir að komast frítt til Japan í kynnisferð í haust í 10 daga. Væri svo sweeeeeeeet að komast þangað! Eeeeeeennnnn, fékk email áðan og þar var sagt að svo rosalega margir hefðu tekið þátt að yfirferð ritgerða var lengd um 10+ daga.....vonir mínar dvínuðu eilítið við þaðÓákveðinn ENN maður á alltaf að vera bjartsýnn!! ekki satt.......?

Annars er hann Einar minn bara komin heim úr útlegðinni fyrir austann, mér og Agnesi til mikillar gleði. Hefst nú eðlilegt fjölskyldulíf!Þögull sem gröfin vonandi...

Fréttir af Agnesi, hmmmmm litla dýrið er að nálgast ansi hratt 2 ára aldurinn. Hegðunin er eftir því (það er víst til eitthvað sem er kallað terrible two!!). Hér er sko reynt á þolþrif foreldranna hægri vinstri. Vinsælt er að :
*krota á veggina
*hella niður....ÖLLU sem hægt er að hella niður, hvenar sem er, hvar sem er!!!
*hlaupa í öfuga átt við þá sem ætlast er til að farið sé
*Nota orðið NEI þegar JÁ er í raun eina svarið...í hugum foreldranna allavegna
*fela sig þegar verið er að flýta sér eitthvað
*neita að borða það sem er í matinn...skyr, bananar, rúsínur, kex, mjólk, brauð, sósur og annað góðgæti er eitthvað sem Agnes gæti hugsað sér að lifa eingöngu á

En dýrið er líka:
*fyndið
*krúttlegt
*óendanlega skemmtilegt
*prakkari út í gegn í húð og hár og allt það....
*hress
*og bara svo óendanlega mikil músla eitthvað

Jæja, er hætt áður en ég fer að verða væmin eða eitthvaðGlottandi
Hin háttverðuga Sandy
3 athugasemdir

Við erum að tala um það!!

15. maí 2008 klukkan 21:10
Ég er officially komin í sumarfrí! Prófum lauk í gær með strembnum loka hnykk...aðferðarfræði. Þrátt fyrir uppgjöf, vonleysi og volæði þá er ég vel bjartsýn á að ég sé búin að ná aðferðarfræðinni...jú og öllum hinum prófunum. En sé ekki fram á jafn góða einkannir og síðustu önnÓákveðinn En, það verður bara að hafa það!
Ég og Agnes yndisfríð ætlum að skella okkur norður á næsta sunnudag og vera fram á föstudag. Okkur hlakkar auðvitað rosa mikið til, munum vonandi hafa það svaka gott hjá múttu minni.
Ég er að fara á landsþjónustu á laugardaginn og vonandi hittir maður nú einhvern frá AK þar. Er annars nokkuð spennt að sitja þessa landsþjónustu...þær eru mjög fróðlegar ... á svo margan hátt!
Vinnan byrjar hjá mér í lok maí.....já ég er að fara að vinna sem flokksstjóri í unglingavinnuni!! Það verður...fróðlegt, svo minnst sé sagt. Hlakka til að prófa að vinna svona með unglingsskröttum, út í "góða" veðrinu (það er eins gott að suðurnesin slái sól, logn og hita met í júní!!!).
Hápunktur sumarsins mun líklegast vera 5júlí....þegar við litla familían skellum okkur til Alicante! JEIIEIJEJEJEJJEJJJ
Vá hvað mig hlakkar til! 10 dagar í sól og sælu, yndislegt!
Annars er bara stöð hérna á suðurnesunum. Ég er búin að vera hálf einstæð frá því í byrjun apríl. Einar að vinna á fullu fyrir austan og verður út maí. Agnes er orðin svona hress með leikskólann sinn, voða gaman að fara og leika við krakkana. Ég orðin hálf geðveik af prófalærdómi, en komst á einhvern ótrulegann hátt í gegnum þauBrosandi Life is gooooooood
Hin háttverðuga Sandy
6 athugasemdir

1. apríl...........en mín hefur bara ekki hugmyndaflug í gott apríl gabb

01. apríl 2008 klukkan 12:57
Páskarnir tóku enda, eins og allt annað. Og við komin heim í myglykotið.
Páskarnir voru góðir. Það var spilað og hlegið og étið. Best í geimi var að "spila" varúlf! Verst að við þekkjum ekki nógu marga hérna á suðurhorninu til að geta smalað í varúlfspartýÓákveðinn
Við komum semsagt vel sátt heim úr Akureyrarferðinni góðu.
Höfum núna staðið í ströngu við að tæma hjónahergið okkar af öllu dótinu okkar og fötum. Öll föt beint í þvottavélina......ekki nema svona 10+ vélar að þvo allt! En engin mygla skal útúr blessuðu herberginu...nema þá út í ruslagám. Það á semsagt að koma í fyrramálið að tæma mygluna úr veggjunum og verður það reddí á miðvikudaginn í næstu viku. Þangað til verður kósý að sofa í gestaherberginu í "góða" gestarúminu okkar. við kanski getum reyndar sofið í rúminu okkar aðeins fyrr ef það verður sótthreinsað dýnurnar áður en þeir byrja á mygluútburðinum....krossa putta!
Sit annars í tíma núna, fjölskyldustefna í framkvæmd....er umræðan. Og ó guð ó guð hvað fyrirlesarinn er dauðans drep leiðinleg! Veit svosem ekki hvort greyið konan sé almennt leiðinleg....en ekki er hún að ná að halda uppi partýii hérna í þessum blessaða tíma!
En skólinn er annars alveg að taka enda, ekki nema 3 kennsluvikur eftir, með þessari sem er núna. Svo 10 daga upplestrarfrí....og svo próf! Guð á himnum verði með mér þá!

Agnes músla byrjar svo á leikskólanum á fimmtudaginn. Ég er þegar komin með hnút í magann, sem virðist ætla að stækka smá daglega. Vonandi verður múllan bara sátt við sig þar. Hún elskaði annars mest af okkur hérna á heimilinu að vera á Akureyri. Hitti svo mikið af fólki og kisum og hundum að enn er talað um þetta allt saman. Anna og kisurnar eru mjög vinsælar og er planið hjá Agnesi að skreppa þangað daglega.....smá samskiptaörðuleikar eru varðandi vegalengdir og slíkt! Svo er Buddi og voffi líka spennandi....skiljanlegaBrosandi Og ömmurnar og flugvélin......verðum greinilega að kíkja norður aftur sem fyrst.

Jamm ætla að snúa mér að dauðanum aftur......
Hin háttverðuga Sandy
2 athugasemdir

íjúuuuuuuuuuuu

25. mars 2008 klukkan 10:11
http://www.youtube.com/watch?v=4IGtDPG4UfI
Hin háttverðuga Sandy
Engin athugasemd

þið segið það.....

13. mars 2008 klukkan 10:00
Maður verður nú að blogga fyrir allt crowdið sem að sækir hingað á síðuna!
Er heima í dag (alltaf frí á fimmtudögum) og á að vera að massa ritgerð....í raun 2 ritgerðir. En eins og þið sjáið þá er andinn ansi fjarlægur núna. Kanski þessi bloggskrif mín vekji upp andann....vonandi.
Annars er allt fínasta að frétta héðan af Reykjanesinu. Búið að vera gósen blíða í marga marga daga! Nema í dag! Vindurinn hefur ákveðið að byrja að blása aftur, enda lá við að maður væri farinn að sakna hans. En, í þessu tilfelli gerði fjarlægðin fjöllin blá og væri ég alveg til í að helvítið hætti að blásaÖskrandi
Akureyri hin fallega bíður eftir okkur þessa dagana. Bara 5 nætur þar til við förum heim!!!!! JEIJ
Hlakka svo til að hitta alla plebbana á Akureyri og bara slappa af... og já Hlín SPILA!
Verðum alveg heilar 6 nætur á Ak þannig að nægur tími er til að gera allt.
Af Agnesi rassmusi er mjög gott að frétta (fullt af nýjum mars myndum inn á síðunni hennar!). Fengum í gær inn á leikskólann hérna og byrjar hún í aðlögun í byrjun apríl....litla stóra stelpan mín bara að byrja í leikskólaHissa Skrítið. Líst annars mjög vel á leikskólann. Skemmtilegt starfsfólk og slatti menntaður af þeim. Músin verður í 5 stelpna kjarna, en það verða 3 stelpukjarnar og 1 stráka kjarni á hennar aldri....verður sko stuð! Svo er svo skemmtileg úti/inni aðstaða þarna. Er semsagt úti leikvöllur en líka svona inni leikvöllur sem er yfirbyggður (kaninn var eitthvað hræddur við hið ísl veðurfar!). Þannig að það er alltaf hægt að fara á leikvöllinn þó að veður sé brjálað.
Svo sótti ég um vinnu á Akri sem er annar hjallaleikskóli, en hann er í innri-njarðvík. Ef ég fæ þá vinnu þá get ég verið heima með Agnesi í júlí, því þá er frí á hennar leikskóla og líka á Akri! Væri bara tær snilld! Gætum snúllast hérna heima og skroppið norður og svona.

Fengum annars smá nasty fréttir í gær! Í svefnherberginu okkar er semsagt mygla! íjuuuuu
Byrjaði að koma smá svartur blettur útúr útveggja horni þar og við létum kíkja á þetta. Og já, það er mygla bakvið veggina og þarf að rífa efst og neðst af þeim og sprauta einhverju sulli bakvið og sótthreinsa þetta helvíti. Þetta er byrjað að koma upp í slatta af íbúðum hérna á svæðinu. Einhver blanda af hönnunargalla hjá kananum og veðrinu sem búið er að vera hérna í vetur. Skemmtilegt!
Ég mun semsagt flytja minn rass yfir í gestaherbergið þangað til þetta ógeð er farið....ætla sko ekki að sofa með minn fallega kropp í einhverri eiturmyglustíuÞögull sem gröfin

Jæja, spurning hvort ég fari að beita þessari skriforku minni í ritgerðarvinnu!
Hin háttverðuga Sandy
5 athugasemdir

Flott myndbönd

11. mars 2008 klukkan 16:10
http://www.youtube.com/watch?v=z3WA9iHz5ww

http://youtube.com/watch?v=Aht0HqI7GSw
Hin háttverðuga Sandy
1 athugasemd